Handknattleiksárið 1958-59 var keppnistímabilið í íslenskum handknattleik sem hófst haustið 1958 og lauk sumarið 1959. FH-ingar urðu Íslandsmeistarar í karlaflokki og KR-stúlkur í kvennaflokki. Karlalandslið Íslands lék nokkra æfingaleiki á tímabilinu.
Karlaflokkur
1. deild
FH-ingar urðu Íslandsmeistarar í meistaraflokki karla á fullu húsi stiga. Keppt var í sex liða deild með einfaldri umferð.
Fram féll í 2. deild.
2. deild
Afturelding sigraði í 2. deild á fullu húsi stiga og tryggði sér sæti í 1. deild. Leikin var einföld umferð í fimm liða deild.
Kvennaflokkur
1. deild
KR-ingar urðu Íslandsmeistarar í meistaraflokki kvenna. Leikin var einföld umferð í sex liða deild.
Landslið
Íslenska karlalandsliðið í handknattleik hélt í keppnisferð um Norðurlönd. Liðið tapaði fyrir Norðmönnum og Svíum, en vann góðan sigur á Dönum, 16:23 í Slagelse. Var sigrinum fagnað gríðarlega á Íslandi.