Handknattleiksárið 1953-54 var keppnistímabilið í íslenskum handknattleik sem hófst haustið 1953 og lauk sumarið 1954. Ármenningar urðu Íslandsmeistarar í karlaflokki en Fram sigraði kvennaflokki. Íslendingar léku enga landsleiki á tímabilinu.
Karlaflokkur
1. deild
Ármenningar urðu Íslandsmeistarar. Keppt var í sex liða deild með einfaldri umferð.
Víkingur féll í 2. deild á markatölu.
2. deild
Þróttur fór með sigur af hólmi og tryggði sér sæti í 1. deild. Keppt var í þriggja liða deild með einfaldri umferð, auk gestaliðs.
Góðtemplarastúkan Sóley frá Reykjavík tók þátt í mótinu sem gestur. Liðið tapaði öllum leikjum sínum, en úrslitin voru ekki talin með við lokaniðurröðun.
Kvennaflokkur
1. deild
Framarar urðu Íslandsmeistarar í meistaraflokki kvenna fimmta árið í röð. Leikin var einföld umferð í sex liða deild.
Íslandsmótið utanhúss
Íslandsmótið í handknattleik utanhúss var haldið sumarið 1950. KR-ingar urðu Íslandsmeistarar í kvennaflokki Framarar í karlaflokki.
Landslið
Engir formlegir landsleikir fóru fram á tímabilinu.