Handknattleiksárið 1946-47 var keppnistímabilið í íslenskum handknattleik sem hófst haustið 1946 og lauk sumarið 1947. Valsarar urðu Íslandsmeistarar í karlaflokki og Ármann í kvennaflokki. Engir landsleikir fóru fram á tímabilinu.
Karlaflokkur
1. deild
Valsmenn urðu Íslandsmeistarar etir úrslitaleik gegn ÍR. Átta lið tóku þátt í Íslandsmóti karla og léku þau einfalda umferð í tveimur fjögurra liða riðlum.
A riðill
B riðill
Úrslitaleikur
Í meistaraliði Vals voru:
Sveinn Helgason, Stefán Hallgrímsson, Garðar Halldórsson, Karl Jónsson, Jón Þórarinsson, Stefán Gunnarsson og Þórður Þorkelsson.
Kvennaflokkur
1. deild
Ármannsstúlkur urðu Íslandsmeistarar í meistaraflokki kvenna eftir úrslitaleik gegn FH. Sjö lið tóku þátt í Íslandsmóti kvenna og léku þau einfalda umferð í tveimur þriggja og fjögurra liða riðlum.
A riðill
B riðill
Úrslitaleikur
Í meistaraliði Ármanns voru:
Hulda Ingvarsdóttir, Sigríður Ólafsdóttir, Sólveig Jónsdóttir, Ólöf Bjartmarsdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Maddý Guðmundsdóttir, Lilja Enoksdóttir og Sigrún Stefánsdóttir.
Íslandsmótið utanhúss
Íslandsmótið í handknattleik kvenna utanhúss var haldið sumarið 1947. Fimm félög tóku þátt og fóru Ármannsstúlkur með sigur af hólmi, unnu alla sína leiki.
Landslið
Engir formlegir landsleikir fóru fram á tímabilinu. Sænska liðið I.F. Kristianstad heimsótti Ísland vorið 1947 og lék þrjá leiki gegn íslensku úrvalsliði og einn gegn Ármenningum. Svíarnir sigruðu í öllum leikjunum með miklum mun.