Lamb í grænu túni - Lag - texti: Halldór Kristinsson - Jóhannes úr Kötlum
Seppi sat á hól - Lag - texti: Halldór Kristinsson - Jóhannes úr Kötlum
Rottan með skottið - Lag - texti: Halldór Kristinsson - Jóhannes úr Kötlum
Afi gamli á eina kú - Lag - texti: Halldór Kristinsson - Jóhannes úr Kötlum
Fífill í túni - Lag - texti: Halldór Kristinsson - Jóhannes úr Kötlum
Textabrot af bakhlið plötuumslags
Halldór Kristinsson er fyrir löngu orðinn landskunnur fyrir söng sinn í söngflokknum Þrjú á Palli. Auk þess hefur hann leikið stór hlutverk í söngleikjunum Hárið og Oklahoma. Á hljómplötu Árna Tryggvasonar, sem kom út fyrir nokkrum árum átti Halldór lítið laglegt lag. Síðan hefur hann gert nokkur lög og eru lögin á þessari plötu úr hópi þeirra. Hér syngur Halldór fimm falleg lög við hin kunnu barnaljóð Jóhannesar úr Kötlum úr bók hans Vísur um Ingu Dóru, en Jóhannes úr Kötlum var frœndi Halldórs.
Myndin á hljómplötuumslaginu hlaut fyrstu verðlaun í keppni, sem fram fór í Langholtsskóla í Reykjavík í sambandi við útgáfu plötunnar. Heitir hún að sjálfsögðu Lamb í grœnu túni. Hana teiknaði Kristján Jónsson, sem er níu ára.
Þessi fallegu barnaljóð Jóhannesar úr Kötlum og hin hugljúfu lög Halldórs eiga áreiðanlega eftir að heyrast sungin oft og mikið af íslenzkum börnum nœstu árin.