Flúðir er þorp í Hrunamannahreppi. Þar búa 818 manns árið 2020 samkvæmt heimildum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga[1]. Þéttbýli hóf að myndast að Flúðum í kringum gróðurhúsarækt og er það í dag ein helsta atvinna staðarins. Stærstu vinnustaðir eru Límtré og Flúðasveppir. Á Flúðum er grunnskóli og skóli fyrir 8. til 10. bekk sem þjónar einnig Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Í kringum Flúðir eru mikil útirækt en einnig gróðurhúsarækt sem nýtir jarðvarmann á svæðinu.
Orðið flúðir merkir truflun í vatni.
Tilvísanir
- ↑ „Hrunamannahreppur“. Samband íslenskra sveitarfélaga. Sótt 19 júlí 2020.