Feðgin syngja saman er 33 snúninga LP hljómplata gefin út af SG - hljómplötum árið 1971. Hljóðritun fór fram í Ríkisútvarpinu undir stjórn Péturs Steingrímssonar. Jón Sigurðsson stjórnar hljómsveitinni er leikur undir og útsetti öll lögin og veit ég, að margir eru mér sammála um, að hann hefur heldur betur blásið rykinu af þessum gömlu lögum og klætt þau í búning ársins 1971. Ljósmyndir á plötuumslagi tók Kristján Magnússon.
Lagalisti
Æskuminning - Bæði syngja - Lag - texti: Ágúst Pétursson - Jenni Jóns
Rökkvar í runnum - Sigurður syngur - Lag - texti: Jónatan Ólafsson - Fríða Sæmundsdóttir
Í Reykjavík - Þuríður syngur - Lag - texti: Hjördís Pétursdóttir - Jenni Jóns
Hvar sem liggja mín spor - Bæði syngja - Lag - texti: N.R. Bakalainikov - Ókunnur
Árin líða - Þuríður syngur - Lag - texti: Matthías Á. Mathiesen - Ólafur Pálsson
Hreðarvatnsvalsinn - Bæði syngja - Lag - texti: Knútur R. Magnússon - Atli Þormar
Vals Moderato - Bæði syngja - Lag - texti: Magnús Pétursson
Ljósbrá - Sigurður Syngur - Lag - texti: Eiríkur Bjarnason - Ágúst Böðvarsson
Kveðja förumannsins - Bæði syngja - Lag - texti: Gunnar Ingólfsson