Einar Kristjánsson leikur á tvöfalda harmoniku er 33 snúninga LP hljómplata gefin út af SG - hljómplötum árið 1979. Á henni leikur Einar Kristjánsson ásamt Garðari Jakobssyni gömul danslög. Ljósmyndin á framhlið plötuumslagsins er frá Akureyri frá því um þarsíðustu aldamót og var hún tekin af Hallgrími Einarssyni ljósmyndara. Myndin var góðfúslega lánuð af Minjasafninu á Akureyri. Myndirnar af Einari og Garðari tók Ljósmyndastofa Páls, Akureyri.
Lagalisti
Norska bóndabrúðkaupið - vals
Sjóarlandspolki
Hermundarfellsræll
Arnbjargarpolki
Árnatrilli
Friðnýjarpolki
Guðjónsræll
Dalsballið - marsúrki
Dansað á Bensahólum - polki
Hún Gunna mín stökk upp á þekjuna - skottís
Ef einhver maður sér unga stúlku - polki
Ég hef verið í London, Liverpool og Hull - skottís
Vakri Skjóni - polki
Þórshafnar-ballið - ræll
Síðasti maður á dekk - vals
Gavotte - gamall franskur vals
Valsasyrpa - Komdu nú vinur því dansinn er dunandi, - Í réttunum dansa ég stöðugt við Stínu, - Komdu kæra mín, - Komdu og kysstu mig, - Nú skaltu heyra mitt ljúfasta lag, - Stúlkurnar segja gagga gagga, - Nú lifnar vor í dalnum, - Þá myndu hossa þér hátt, - Við hefjum dansinn.