Æskuminning - Lag - texti: Ágúst Pétursson - Jenni Jónsson - Hljóðdæmiⓘ
Vökudraumur - Lag - texti: Jenni Jónsson - Hljóðdæmiⓘ
Litla stúlkan - Lag - texti: Steingrímur Sigfússon
Manstu gamla daga - Lag - texti: Alfreð Clausen - Kristín Engilbertsdóttir - Hljóðdæmiⓘ
Æskuminning
Lagið Æskuminning lenti í öðru sæti í danslagakeppni SKT árið 1952, en bar sigur úr býtum í vali áhorfenda. Höfundurinn Ágúst Pétursson samdi lagið nokkru fyrir þann tíma, en það kom fyrst út á 78 snúninga plötu með Alfreð Clausen hjá Íslenzkum tónum árið 1953 (IM 11). Á þeirri plötu var einnig lagið Manstu gamla daga eftir Alfreð sjálfan.
Æskuminning naut mikilla vinsælda og kom einnig út á Norðurlöndunum. Carl Billich útsetti lagið. Ágúst átti fleiri lög sem Íslenzkir tónar gáfu út, lögin Hittumst heil og Ég mætti þér sem Tígulkvartettinn söng, Harpan ómar sem Alfreð og Ingibjörg Þorbergs sungu saman og Þórður sjóari sem Alfreð söng.